Shipping policy
Gildistökudagur og síðast uppfært: 12. ágúst 2026.
Afhending innanlands
Pantanir eru sendar með Dropp eða póstsendingu innanlands. Sendingargjald og þeir afhendingarmátar sem í boði eru birtast við upphaf greiðsluferlis og áður en pöntun er staðfest. Heildarafhendingartími frá pöntun til afhendingar er að jafnaði 3–7 virkir dagar (afgreiðsla pöntunar 1–2 virkir dagar og flutningur 2–5 virkir dagar). Afhendingartími getur lengst yfir hátíðir.
Að sækja pöntun
Hægt er að sækja pantanir án gjalds á Laugaveg 7, 101 Reykjavík, samkvæmt samkomulagi. Tilkynning er send í tölvupósti þegar pöntun er tilbúin til afhendingar.
Seinkun, tjón eða glötuð sending
Verði sending fyrir töfum, glatist hún eða berist skemmd, vinsamlegast hafið samband á fonsjuris@fonsjuris.is eða í síma 571-5050 og við fylgjum málinu eftir gagnvart flutningsaðila. Áhætta af vörunni flyst ekki til neytanda fyrr en hann eða þriðji aðili sem hann tilnefnir hefur veitt henni viðtöku; tjón eða glötun í flutningi er því á ábyrgð Fons Juris.
Sendingar til útlanda
Sendingar til útlanda eru afgreiddar eftir samkomulagi. Vinsamlegast hafið samband á fonsjuris@fonsjuris.is áður en pöntun er lögð inn og fáið uppgefið sendingargjald og áætlaðan afhendingartíma. Tollar og önnur opinber gjöld í viðtökulandi, ef við á, eru á ábyrgð kaupanda nema um annað sé samið.