Vefverslun Fons Juris útgáfu ehf.
Endurskoðun stjórnvaldsákvarðana
Couldn't load pickup availability
Bók þessi er hluti af ritröð á sviði lögfræði sem fjallar á heildstæðan hátt
um almennar reglur íslensks stjórnsýsluréttar. Bera ritin í ritröðinni
eftirfarandi heiti. Stjórnsýslukerfið, Málsmeðferð stjórnvalda, Upplýsingaréttur og þagnarskylda, Almennar efnisreglur stjórnsýsluréttar, Endurskoðun stjórnvaldsákvarðana, Opinber starfsmannaréttur og Málsmeðferð á sveitarstjórnarstigi.
Ritröðin er í heild unnin undir ritstjórn dr. juris Páls Hreinssonar forseta EFTA-dómstólsins og Trausta Fannars Valssonar dósents við Lagadeild Háskóla Íslands. Höfundar bókarinnar eru Kjartan Bjarni Björgvinsson, Ólafur Jóhannes Einarsson og dr. jur. Páll Hreinsson. Bókin fjallar um þær reglur stjórnsýsluréttar sem svara því hvenær hægt er að fá stjórnvaldsákvörðun endurskoðaða, fá henni breytt eða hana fellda niður. Í ritinu er þannig fjallað um ágrip af ógildingarfræðum stjórnsýsluréttarins, ógildingu stjórnvaldsákvarðana hjá stjórnvöldum, endurupptöku máls, afturköllun máls, stjórnsýslukæru, endurskoðun dómstóla á gildi stjórnvaldsákvarðana og endurskoðun umboðsmanns Alþingis á athöfnum stjórnvalda. Í lokin fylgir kafli um þvingunarúrræði stjórnvalda.
