Skip to product information
1 of 2

Páll Hreinsson

Málsmeðferð stjórnvalda

Verð 16.900 ISK
Verð Útsöluverð 16.900 ISK
Útsöluverð Uppseld
Með virðisaukaskatti

 

Bók þessi er hluti af ritröð á sviði lögfræði sem fjallar á heildstæðan hátt um almennar réttarreglur íslensks stjórnsýsluréttar. Bera ritin í ritröðinni eftirfarandi heiti: Stjórnsýslukerfið, Málsmeðferð stjórnvalda, Upplýsingaréttur, Almennar efnisreglur stjórnsýsluréttar, Endurskoðun stjórnvaldsákvarðana, Opinber starfsmannaréttur og Stjórnsýsla á sveitarstjórnarstigi. Ritröðin er í heild unnin undir ritstjórn dr. juris Páls Hreinssonar forseta EFTA-dómstólsins og Trausta Fannars Valssonar dósents við Lagadeild Háskóla Íslands. Höfunda er síðan getið í hverju bindi fyrir sig.


Höfundur bókarinnar er Páll Hreinsson forseti EFTA-dómstólsins. Í bókinni fjallar Páll á skýran hátt um þær réttarreglur sem gilda um það hvernig stofnað er til stjórnsýslumála, hvernig þau eru rannsökuð og hvernig ákvörðun er tekin í þeim. Vikið er að mörgum mikilvægum reglum, s.s. um sérstakt hæfi starfsmanna stjórnvalda, leiðbeiningarskyldu stjórnvalda, rannsóknarreglu, andmælareglu, reglum um aðgang aðila máls að gögnum málsins og reglum um rökstuðning stjórnvaldsákvarðana o.fl. Þá er í bókinni vikið að þýðingu persónuupplýsingalaga við meðferð stjórnsýslumála. Sjónarhornið er samskipti borgaranna, þ.e. aðila málsins, og þess stjórnvalds sem fer með málið og tekur ákvörðun.